Íþróttahús NjarðvíkingaNjarðvík
Íþróttahús og sundlaug eru hluti af öðrum áfanga í uppbyggingu Stapaskóla, en skólinn verður reistur í þremur áföngum. Þessi hluti byggingarinnar er á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni eru fjölnotasalur, móttaka, aðstaða fyrir starfsfólk og aðra íþróttatengda starfsemi, auk búningsklefa fyrir íþróttasalinn.
Á efri hæðinni er að finna sundlaug sem ætluð er til kennslu og æfinga, búningsklefa og útisvæði með tveimur heitum pottum, vaðlaug og köldum potti. Einnig verður þar þurrgufa og innrauður klefi með sturtuaðstöðu. Frá efri hæð er einnig hægt að ganga út á svalir sem liggja allan hringinn umhverfis fjölnotasalinn. Svalirnar nýtast bæði sem viðbótar áhorfendapallur og sem aðstaða fyrir upptökur. Húsið tekur 1400 manns í sæti